Fotbolti.net
30.07.07 - 12:35
Arnar Geir Halldórsson

Romeo Castelen til Hamburg (Staðfest)

Castelen mættur á æfingu með HSV

Castelen mættur á æfingu með HSV

Canon

Mynd: Getty Images

Hamburg SV hefur fest kaup á hollenska kantmanninum Romeo Castelen frá Feyenoord.
Castelen hefur gert fjögurra ára samning við liðið og er kaupverðið um 3 milljónir evra en þýska liðið staðfesti þetta fyrr í dag og er kappinn byrjaður að æfa með liðinu.

Hjá liðinu hittir hann fyrir þrjá landa sína þá Rafael van der Vaart, Joris Mathijsen og Nigel de Jong en van der Vaart er fyrirliði liðsins.

,,Við erum ánægðir með að Romeo hafi gengið til liðs við okkur og erum staðráðnir í að hann muni styrkja liðið." sagði yfirmaður íþróttamála hjá félaginu.

Castelen er 24 ára gamall og á að baki 11 landsleiki fyrir Holland og hefur skorað í þeim eitt mark. Hann hefur skorað 40 mörk í 148 leikjum í hollensku deildinni en hann hefur leikið með ADO Den Haag og Feyenoord.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.