Fotbolti.net
30.07.07 - 15:23
Sindri Þór Þorgeirsson

Filipe Morais til Hibernian (Staðfest)

Morais í leik með St.Johnstone

Morais í leik með St.Johnstone

Canon

Mynd: Getty Images

Skoska úrvalsdeildarfélagið Hibernian hefur fengið til sín Filipe Morais fyrrverandi leikmann Chelsea. Hann skrifaði undir tveggja ára samning hjá félaginu um helgina.
Morais, sem Jose Mourinho fékk til liðs við sig hjá Chelsea, náði engan veginn að standa undir væntingum þar og var að lokum seldur.
Hann kemur til Hibernian frá Milwall og skrifar eins og áður segir undir tveggja ára samning.

Hann spilaði sinn fyrsta leik með Hibs um helgina, þar sem hann kom inná sem varamaður þegar liðið vann Middlesbrough 1-0 í æfingaleik, hann þótti standa sig vel í frumraun sinni hjá liðinu.

,, Hann fékk góð meðmæli hjá forráðamönnum Chelsea," sagði John Collins þjálfari Hibs.

,, Ég sá hann spila á síðasta tímabili þegar hann var á láni hjá St.Johnstone, hann er mjög sterkur og góður á bolta og er einmitt sá leikmaður sem við vorum að leita að, ég er mjög ánægður með að fá hann til okkar," bætti Collins við að lokum.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.