30.07.07 - 21:01
Sindri Þór Þorgeirsson
Arsenal lánar Kerrea Gilbert til Southend (Staðfest)

Gilbert í leik með Cardiff á síðasta tímabili

Mynd: Getty Images

Arsenal hefur lánað varnarmanninn Kerrea Gilbert til Southend og er hann nú þegar byrjaður að æfa með klúbbnum.
Gilbert sem er 20 ára gamall, eyddi síðasta tímabili á láni hjá Cardiff í fyrstu deildinni þar sem hann spilaði 26 leiki fyrir liðið.
Tímabilið þar á undan spilaði hann 9 leiki fyrir aðallið Arsenal og 16 varaliðsleiki en miklar vonir eru bundnar við þennan knáa varnarmann hjá Arsenal.
Lánstíminn er 6 mánuðir og mun hann eflaust fá að spila mun meira hjá Southend heldur en hann hefði gert hjá Arsenal í vetur.

Heimild: Heimasíða Arsenal