30.07.07 - 21:38
Sindri Þór Þorgeirsson
José Antonio Reyes til Atletico Madrid (Staðfest)

Reyes verður áfram í Madrid

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Reyes verður áfram í Madrid

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Atletico Madrid staðfestu nú í kvöld að þeir hafi náð samkomulagi við Arsenal um kaupin á spænska landsliðmanninum Jose Antonio Reyes. Kaupverðið er talið vera rúmlega 8 milljónir punda.
Reyes var keyptur til Arsenal frá Sevilla í janúar 2004 og náði aldrei að finna sig almennilega í enska boltanum. Hann var á láni hjá Real Madrid í vetur og tryggði Real Madrid meðal annars sigur í spænsku deildinni þegar hann skoraði 2 mörk í síðustu umferðinni gegn Mallorca.
Arsene Wenger hafði fyrr í dag gefið það út að Reyes yrði pottþétt ekki áfram hjá Arsenal og nú hafa Atletico Madrid loksins gengið frá kaupunum á Spánverjanum eftir samningaviðræður undanfarna daga.
Kaupverðið á Reyes er eins og áður sagði rúmar 8 milljónir punda og mun hann gera samning við félagið til fjögurra ára.

Heimild: Sky Sports