30.07.09 - 11:01
Brynjar Ingi Erluson
Elano til Galatasaray (Staðfest)

Elano

Mynd: Getty Images

Elano

Mynd: Getty Images
Brasilíski miðjumaðurinn Elano er genginn til liðs við tyrkneska stórliðið Galatasaray, en hann kemur frá Manchester City.
Framíð Elano hafði verið í óvissu eftir að hann datt úr plönum Mark Hughes, stjóra Man City á síðasta tímabili, en liðið sagðist vera tilbúið að selja hann ef að ásættanlegt verð yrði boðið í hann.
Juventus, AC Milan og Inter Milan voru öll orðuð við Elano, en þau höfðu öll mikinn áhuga á honum eftir tvö frábær tímabil með Man City. Hins vegar ákvað að hann að semja við Galatasaray í Tyrklandi, en hann gerir fjögurra ára samning við félagið.
Talið er að kaupverðið nemi um 8 milljónir punda, sama verð sem Man City borgaði fyrir Elano er liðið keypti hann frá Shakhtar Donetsk frá Úkraínu fyrir tveimur árum.
Elano, sem er 28 ára gamall lék 80 leiki fyrir Man City og skoraði 18 mörk í öllum keppnum fyrir félagið.

Heimild: Sky