30.07.09 - 10:17
Stefán Guðberg Sigurjónsson
City lánar Bojinov til Parma (Staðfest)

Bojinov var mikið meiddur hjá City

Mynd: Getty Images

Bojinov var mikið meiddur hjá City

Mynd: Getty Images
Ítalska félagið Parma hefur gengið frá lánssamningi á búlgarska sóknarmanninum Valeri Bojinov frá Manchester City og verður hann hjá þeim út næsta tímabil.
Þessi 23. ára gamli sóknarmaður, sem hefur einnig spilað fyrir Lecce, Juventus og Fiorentina, er því kominn aftur til Ítalíu eftir tveggja ára dvöl á Englandi.
,,Ég vil þakka City. Ítalía er mitt annað heimili og ég vil þakka Parma fyrir það traust sem þeir hafa sett á mig,” sagði Bojinov.
Bojinov var á sínum tíma einn efnilegasti leikmaður Evrópu eftir að hafa spilað sinn fyrsta leik fyrir Lecce aðeins 15 ára gamall en hefur ekki náð að festa sig almennilega í sessi eftir að hann yfirgaf félagið.
Sven-Göran Eriksson fékk svo Bojinov til City árið 2007 en hann hefur verið mikið frá vegna meiðsla og stefnir hann nú í Mjólburbæinn.

Heimild: Football Italia