Fotbolti.net
30.07.09 - 11:50
Gunnar Gunnarsson

Börsungar lána Alexander Hleb til Stuttgart (Staðfest)

Hvít-Rússinn snýr aftur til síns gamla félags

Alexander Hleb snýr aftur til Stuttgart.

Alexander Hleb snýr aftur til Stuttgart.

Canon

Mynd: Getty Images

Stuttgart sem endaði í þriðja sæti þýsku Bundeslígunnar á síðasta keppnistímabili hafa klófest fyrrum leikmann félagsins, Alexander Hleb á lánssamningi frá Barcelona en þetta staðfesta Evrópumeistararnir á opinberri heimasíðu sinni.
Hleb var talinn líklegur til að ganga til liðs við ítölsku meistarana í Inter Milan sem hluti af kaupverði Zlatan Ibrahimovic en Hvít-Rússinn hafði ekki áhuga á að fara til Ítalíu.

Þess í stað ákvað kappinn að snúa aftur til Stuttgart þar sem hann lék í fimm ár frá 2000 til 2005 en hann kemur til með að vera í láni í eitt ár og koma Þjóðverjarnir til með að greiða laun Hleb meðan hann dvelur þar í landi.

Hins vegar greinir spænska blaðið Mundo Deportivo að Barcelona komi til með að þurfa að greiða Inter Milan 3 milljónir evra eftir að Hleb neitaði að ganga til liðs við ítalska liðið.

Heimild: Goal.com

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.