30.07.09 - 15:38
Gunnar Gunnarsson
Alvaro Albeloa frá Liverpool til Real Madrid (Staðfest)

Alvaro Albeloa hefur yfirgefið herbúðir Liverpool.

Mynd: Getty Images

Real Madrid hafa staðfest á opinberri heimasíðu félagsins að þeir séu búnir að ganga frá kaupum á Alvaro Arbeloa frá Liverpool.
Þessi 26 ára gamli bakvörðurinn kemur til með að skrifa undir fimm ára samning við Real Madrid þegar hann hefur gengist undir læknisskoðun í dag.
Liverpool hafa einnig gefið út yfirlýsingu þess efnis að Spánverjarnir komi til með að greiða um 3.5 milljónir punda fyrir Arbeloa.
Alvaro Arbeloa er þar með þriðji leikmaðurinn sem snýr aftur til síns gamla uppeldisfélags í sumar en ásamt honum hafa Alvaro Negredo og Esteban Granero komið aftur tilbaka eftir að hafa spilað hjá spænska stórliðinu á sínum yngri árum.

Heimild: Goal.com