30.07.11 - 08:12
Hafliði Breiðfjörð
Hjörvar Hafliðason í Augnablik (Staðfest)

Hjörvar Hafliðason er kominn í Augnablik.

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

3. deildarlið Augnabliks heldur áfram að fá til sín þekkta leikmenn því sjónvarpsmaðurinn góðkunni Hjörvar Hafliðason var að ganga til liðs við þá.
Hjörvar var á árum áður markvörður með liði Breiðabliks en varð að leggja hanskana á hilluna vegna meiðsla sumarið 2007.
Hann tekur hanskana nú fram úr hillunnni og verður til taks á bekknum hjá Augnablik í 3. deildinni ef á þarf að halda.
Hann á að baki leik með U21 árs landsliði Íslands og er uppalinn hjá HK en hóf meistaraflokksferil sinn með Val árið 1999 þegar hann spilaði alla leiki liðsins í efstu deild.
Hann var varamarkvörður hjá KR sumarið 2004 en fór þaðan til Breiðabliks þar sem hann spilaði 43 leiki frá 2005-2007 og var í liðinu sem vann 1. deildina 2005.