30.07.11 - 12:00
Hafliði Breiðfjörð
Pétur Pétursson genginn í raðir KR (Staðfest)

Pétur Pétursson er kominn í KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Pétur Pétursson er kominn í KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Pétur Pétursson aðstoðarþjálfari KR gladdi eflaust hjörtu margra stuðningsmanna liðsins í gær þegar hann fékk félagaskipti í félagið.
Stuðningsmenn KR hafa jafnan viljað hafa þjálfara liðsins skráða í félagið og Pétur gekk frá þessum málum í gær og fékk leikheimild með liðinu á miðnætti þó það verði að draga í efa að hann ætli sér að nýta sér heimildina til að spila með liðinu enda orðinn fjörgamall fótboltalega séð.
Pétur sem er orðinn 52 ára gamall var skráður í Keflavík þar til hann fékk félagaskiptin.
Hann er eins og allir vita uppalinn hjá ÍA þar sem hann var þar til hann fór í atvinnumennsku og einnig eftir að heim kom árið 1987.
Hann gekk til liðs við KR fyrir tímabilið 1987 og lék þar til ársins 1991.
Eftir það lék hann fimm bikarleiki með liði Tindastóls árin 1992 og 1993.
Auk þess að vera aðstoðarþjálfari Rúnars Kristinssonar hjá KR er Pétur aðstoðarmaður Ólafs Jóhannessonar með íslenska landsliðið.