30.07.11 - 09:36
Hafliði Breiðfjörð
Írsk landsliðskona í Þór/KA (Staðfest)

Caldwell í landsleik með Írum.

Mynd: Getty Images

Caldwell í landsleik með Írum.

Mynd: Getty Images

Kvennalið Þór/KA frá Akureyri fékk í morgun liðsstyrk fyrir lokahlutann í Pepsi-deild kvenna og Meistaradeild kvenna þegar írska landsliðskonan Diane E Caldwell gekk til liðs við félagið.
Caldwell er 23 ára gömul og hefur samið við Þór/KA út þetta ár. Hún er hægri fótar leikmaður sem getur ýmist spilað sem miðvörður eða aftarlega á miðjunni.
Hún hefur leikið 11 leiki fyrir landslið Írlands en hefur mikla reynslu með yngri landsliðum þjóðar sinnar og á að baki 44 leiki með U19 og U17 ára landsliðunum.
Caldwell kemur frá Bandaríkjunum þar sem hún hefur verið að spila með Albany Alleycats á þessu ári en áður með Hudson Valley Quickstrike Lady Blues og í Hofstra háskólanum frá 2006-2010. Hún lék með liði Raheny United í heimalandi sínu á árunum 2004-2011.
Þór/KA er í þriðja sæti Pepsi-deildar kvenna, átta stigum frá toppliði Stjörnunnar. Liðið leikur í Meistaradeild kvenna í haust.