30.07.11 - 14:36
Hafliði Breiðfjörð
Andrés Már Jóhannesson í Haugesund (Staðfest)

Andrés Már er kominn í norsku deildina.

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Andrés Már Jóhannesson er genginn til liðs við Haugesund í Noregi en þetta er staðfest á vef félagsins í dag.
Kjartan Daníelsson formaður Fylkis hafði staðfest við Fótbolta.net í gær að félagið hafi tekið tilboði Haugesund í leikmanninn og nú hefur samkomulag náðst milli Andrésar og norska félagsins.
Asbjörn Halegeland íþróttastjóri Haugesund staðfesti þetta á vef félagsins og sagði að Andrés Már sem er 22 ára gamall muni klæðast treyju númer 7 hjá sínu nýja félagi.
Hann segir að viðræður við Andrés hafi hafist áður en hann sneri aftur eftir reynsluæfingar í síðustu viku þar sem hann þótti standa sig mjög vel í æfingaleik gegn Sandnes Ulf. Samkomulag náðist svo við leikmanninn í gærkvöld samkvæmt vef félagsins og hann kemur svo til Noregs í fyrramálið.

Heimild: Vefur Haugesund