30.07.11 - 18:54
Hafliði Breiðfjörð
Joey O\'Brien til West Ham (Staðfest)

O\'Brien í leik með Bolton.

Mynd: Getty Images

O\'Brien í leik með Bolton.

Mynd: Getty Images
West Ham United tilkynnti á vef sínum i kvöld að írski landsliðsmaðurinn Joey O\'Brien sé genginn til liðs við félagið frá Bolton Wanderers.
O\'Brien sem er 25 ára gamall kemur frítt til félagsins eftir að hafa verið leystur undan samningi hjá Bolton fyrr í sumar.
Hann á að baki þrjá landsleiki fyrir Írland og hefur æft með West Ham allt undirbúningstímabilið undanfarnar fjórar vikur.
Hann fór með liðinu í æfingabúðir til Sviss og hefur spilað nokkra leiki, gegn BSC Young Boys, FC Basel, FC Copenhagen, Wycombe Wanderers og Dagenham & Redbridge.
,,Auðvitað er ég hæstánægður með að semja loksins því ég hef verið hérna síðan í byrjun æfingatímabilsins,\" sagði O\'Brien á vef West Ham.
,,Það eru liðnar nokkrar vikur núna og hefur gengið vel. Stjórinn vildi að ég semdi og um leið og ég heyrði það hikaði ég ekkert. Ég er ánægður með að þetta er frágengið.\"

Heimild: Vefur West Ham