Fotbolti.net
30.08.06 - 06:45
Magnús Már Einarsson

Bolton fær miðjumann frá Íran (Staðfest)

Fá nýjan liðsfélaga.

Fá nýjan liðsfélaga.

Canon

Mynd: Getty Images

Bolton hefur samið við Íranann, Andranik Teimourian en þessi varnarmaður kemur frá Abu Moslem og hefur hann gert tveggja ára samning við enska félagið.
Teimourian er annar leikmaðurinn sem Bolton fær á innan við viku en Nicolas Anelka kom til liðsins á dögunum. Teimourian á ellefu landsleiki að baki en þessi 23 ára leikmaður spilaði alla leiki Írana á HM og hefur nú gengið til liðs við Bolton eftir að hafa fengið atvinnuleyfi í Englandi.

,,Andranik er hæfileikaríkur leikmaður. Hann er einhver sem ég tel að geta aðlagast erfiðum kröfum úrvalsdeildarinnar. Adranik hreif marga á HM og ég er ánægður með að við höfum unnið mikla samkeppni með því að fá hann," sagði Sam Allardyce stjóri Bolton við heimasíðu félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.