Fotbolti.net
30.08.06 - 12:16
Hafliði Breiðfjörð

Stilian Petrov til Aston Villa (Staðfest)

Petrov í landsleik gegn Íslendingum í Laugardalnum.

Petrov í landsleik gegn Íslendingum í Laugardalnum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Aston Villa hafa gengið frá 6 milljón punda kaupum á Búlgaranum Stilian Petrov sem kemur frá Glasgow Celtic í Skotlandi. Petrov sem er 27 ára gamall er landsliðsfyrirliði Búlgaríu.
Hann gerir fjögurra ára samning við Aston Villa og hittir þar fyrir Martin O´Neill fyrrum stjóra sinn hjá Celtic en O´Neill tók við Aston Villa nýlega og Petrov er hans fyrstu kaup.

Hann er núna með landsliði sínu en búið er að ganga frá öllum lausum endum og því ætti Petrov að geta mætt West Ham 10. september næstkomandi. Talið er að kaupverðið geti hækkað upp í 8 milljónir punda.

Portsmouth hafa verið á eftir Petrov í allt sumar en nú hafa Villa haft betur. Hann kom til Celtic í júlí 1999 frá CSKA Sofia og lék yfir 250 leiki fyrir skoska félagið. Hann var samningsbundinn þeim til 2010 en bað um að að vera seldur.

Petrov var valinn leikmaður skosku úrvalsdeildarinnar árið 2001 en þá vann Celtic þrennuna í heimalandinu. Talið er að Aston Villa muni nú beina sjónum sínum að Javier Saviola framherja Barcelona.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.