Fotbolti.net
30.08.06 - 14:36
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Gravesen til Celtic (Staðfest)

Gravesen fann sig aldrei með Real Madrid

Gravesen fann sig aldrei með Real Madrid

Canon

Mynd: Getty Images

Celtic hafa staðfest kaupin á danska landsliðsmanninum Thomas Gravesen og kemur hann fyrir tvær milljónir punda frá spænska stórveldinu Real Madrid.
Þessi 30 ára gamli leikmaður, sem kom til Real í janúar 2005 fyrir 2,5 milljón punda, skrifaði undir þriggja ára samning við skosku meistarana með möguleika á einu ári í viðbót.

,,Ég er í skýjunum með að hafa gengið til liðs Celtic, einn af stærsta klúbb heims. Eftir að hafa talað við knattspyrnustjórann, framkvæmdarstjórann og fólkið hjá klúbbnum er ég spenntur fyrir að koma hingað," sagði Gravesen.

Gravesen er núna með danska landsliðinu sem mætir Portúgal í æfingaleik á föstudaginn og Íslandi á Laugadalsvelli næsta miðvikudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.