30.08.06 - 15:55
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Leandro Cufre til Monaco (Staðfest)

Cufre (til hægri) í baráttunni um boltann við Mauro Camoranesi hjá Juventus

Mynd: Getty Images

Cufre (til hægri) í baráttunni um boltann við Mauro Camoranesi hjá Juventus

Mynd: Getty Images
Monaco hafa gengið frá kaupunum á argentíska landsliðsmanninum Leandro Cufre frá Roma en það er upp á dag fimm ár síðan hann kom til ítalska félagsins frá Gimnasia í heimalandinu fyrir þrjár milljónir punda.
Ekki var gefið fram hversu mikið franska félagið þurftu að borga fyrir leikmanninn sem hefur spilað fjóra landsleiki fyrir Argentínu og spilaði meðal annars gegn Hollandi á Heimsmeistaramótinu í sumar.
Cufre skrifaði undir þriggja ára samning við Monaco og getur hann spilað allar stöður í vörninni þó að hann kunni best við sig í miðverði.
Cufre skrifaði undir þriggja ára samning við Monaco og getur hann spilað allar stöður í vörninni þó að hann kunni best við sig í miðverði.
