Fotbolti.net
30.08.06 - 16:17
Hafliði Breiðfjörð

Woodgate og Huth til Middlesbrough (Staðfest)

Jonathan Woodgate er kominn til Englands á ný.

Jonathan Woodgate er kominn til Englands á ný.

Canon

Mynd: Getty Images

Middlesbrough eru búnir að styrkja vörnina hjá sér verulega því í dag gengu þeir Jonathan Woodgate og Robert Huth í raðir félagsins.
Woodgate sem er 26 ára er í eigu Real Madrid er lánaður í eina leiktíð með möguleika á að Middlesbrough geti keypt hann í kjölfarið. Hann er fæddur í Middlesbrough og spilaði undir góðan orðstír hjá Newcastle áður en hann fór til Real Madrid.

Woodgate gerði fjögurra ára samning við Real Madrid er hann gekk til liðs við félagið í ágúst 2004 en kaupverðið var þá 13,4 milljónir punda og spænska stórveldið ákvað að kaupa hann þrátt fyrir að hann hafi verið meiddur á læri. Hann lék 14 leiki fyrir spænska stórveldið.

Huth sem er 22 ára kemur frá Chelsea en hann gerir fimm ára samning við Middlesbrough. Kaupverðið er 6 milljónir punda. Huth var á fimm ára ferli sínum hjá Chelsea einungis 32 sinnum í byrjunarliðinu. Til stóða að hann gengi til liðs við Boro í júlí en það var ekki klárað fyrr en í dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.