Fotbolti.net
30.08.06 - 21:34
Magnús Már Einarsson

Sorin til Hamburg SV (Staðfest)

Sorin fékk treyju númer tvö hjá Hamburg.

Sorin fékk treyju númer tvö hjá Hamburg.

Canon

Mynd: Getty Images

Hamburger SV hefur keypt argentínska landsliðsfyrirliðann Juan Pablo Sorín frá Villareal á þrjár milljónir evra en þessi þrítugi leikmaður getur spilað í vörninni og á miðjunni.
,,Með reynslu sinni getur Sorín hjálpað okkur í Meistaradeildinni," sagði Thomas Doll þjálfari Hamburger en Sorín sem spilaði á HM í sumar skoraði átta mörk í 56 leikjum með Villareal.

Sergei Barbarez, Daniel van Buyten og Khalid Boulahrouz hafa allir yfirgefið Hamburger sem endaði í þriðja sæti í Bundesligunni í fyrra.

Liðið komst áfram í Meistaradeildina nú á dögunum með marki á útivelli gegn Osasuna en það hefur gert núna fimm jafntefli í röð, þrjú í Bundesligunni og tvö í Meistaradeildinni og á Sorín að reyna að hjálpa því á sigurbrautina á ný.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.