Fotbolti.net
30.08.06 - 23:10
Hörður Snævar Jónsson

Rossi á láni frá United til Newcastle (Staðfest)

Rossi mun leika með Newcastle fram í janúar.

Rossi mun leika með Newcastle fram í janúar.

Canon

Mynd: Getty Images

Giuseppe Rossi er gengin til liðs við Newcastle frá Manchester United á lánsamningi fram í janúar. Rossi sem er 19 ára gamall er einn af framtíðarleikmönnum á Old Trafford en samningur hans við félagið er til 2010.
,,Þegar hann snýr til baka verður hann með meiri reynslu og mun færa okkur meira," sagði Sir Alex Ferguson stjóri Manchester United, en hann má þó ekki spila gegn Manchester.

Fram í janúar mun hann berjast við þá Obafemi Martins og Shola Amoebi um að verða fyrstur í goggunaröðinni. Rossi lék á síðustu leiktíð 12 leiki með aðaliði United og skoraði í þeim fjögur mörk.

Í yfirlýsingu á heimasíðu Newcastle segir. ,,Newcastle hefur náð samkomulagi við Manchester United um að fá framherjann Giuseppe Rossi að láni. Eins og í öllum lánsamningum milli Úrvaldsdeildarliða er samkomulag má hann ekki spila í leikjum milli liðana."
,,Þetta var erfið ákvörðun fyrir okkur því að þú vilt velja á milli framherja, en þetta er eitthvað sem Giuseppe vill og hann þarf reglulega að spila með fyrsta liði," sagði Ferguson að lokum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.