30.08.07 - 14:56
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Gunnar Heiðar Þorvaldsson til Valerenga á láni (Staðfest)

Gunnar Heiðar og Árni Gautur á æfingu með Valerenga

Mynd: TV2

Íslenski landsliðsmaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson hefur gengið til liðs við félagið Valerenga á láni frá þýska félaginu Hannover 96. Hann mun klæðast treyju númer 34 hjá félaginu.
Lánssamningurinn gildir til 30. júní á næsta ári og hefur norska félagið kauprétt á þessum snjalla sóknarmanni að þeim tíma loknum.
Gunnar Heiðar er ekki ókunnugur í Norðurlöndunum en árið 2005 var hann markahæsti leikmaður sænsku deildarinnar með 16 mörk er hann var hjá Halmstad.
Valerenga, sem hafa einnig landsliðsmarkvörðinn Árna Gaut Arason á sínu snærum, eru í áttunda sæti deildarinnar með 21 stig eftir átján leiki, rétt eins og Strømsgodset og íslendingaliðið Aalesund.
Gunnar Heiðar má ekki spila með Valerenga í 1. umferð Evrópukeppni félagsliða þar sem hann var ekki skráður í leikmannahóp liðsins á tilsettum tíma en komist þeir áfram er hann löglegur í næstu umferð.

Heimild: Opinber heimasíða Valerenga