Fotbolti.net
30.08.09 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Andriy Shevchenko til Dynamo Kiev (Staðfest)

Seinni ár Shevchenko hafa reynst honum erfið

Seinni ár Shevchenko hafa reynst honum erfið

Canon

Mynd: Getty Images

Dynamo Kiev frá Úkraínu hefur fengið Andriy Shevchenko, sóknarmann Chelsea á frjálsri sölu.
Shevchenko, sem er 33 ára gamall hefur átt erfitt uppdráttar hjá Chelsea síðan hann kom þangað frá AC Milan árið 2006 fyrir metfé.

Hann fór þó til Milan á lán á síðasta tímabili, en hann náði þó ekki sínu gamla formi þar og fór því aftur Chelsea, en Carlo Ancelotti hafði gefið grænt ljós á að leyfa leikmanninum að yfirgefa klúbbinn þar sem hann væri ekki með fast sæti í liðinu.

Dynamo var fljótt að setja sig í samband við Shevchenko og hefur liðið nú staðfest að hann hefur skrifað undir tveggjar ára samning við félagið.

Shevchenko er vel kunnugur Dynamo Kiev, en hann ólst upp hjá félaginu og lét ljós sitt skína þar fyrst, en hann verður kynntur hjá félaginu á næstu dögum.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.