30.08.09 - 08:00
Hafliði Breiðfjörð
Haukur Páll Sigurðsson til Alta IF (Staðfest)

Haukur Páll er farinn frá Þrótti.

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Haukur Páll Sigurðsson leikmaður Þróttar hefur verið lánaður til norska 1. deildarliðsins Alta IF en frá þessu var greint á vef Þróttar í gærkvöld.
Alta IFer í baráttu um að komast í umspil um sæti í úrvalsdeildinni og situr sem stendur í 5.sæti 1.deildar.
Haukur er uppalinn Þróttari og hefur aldrei leikið fyrir annað félag. Á vef Þróttar kemur fram að hann ásamt stjórn knattspyrnudeilar Þróttar hafa stefnt að því að hann geti komist til að leika erlendis og nú hefur gott tækifæri boðist.
Haukur ætti að verða löglegur með Alta IF strax á mánudaginn og fer strax til þeirra og leikur því ekki meira með Þrótti á þessu tímabili.
Hann missir af leik Þróttar gegn FH í Pepsi-deildinni annað kvöld og hefði gert það hvort eð er þar sem hann á að taka út leikbann í þeim leik.

Heimild: Vefur Þróttar