30.09.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Sheffield United fær Creswell á láni frá Stoke (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Sheffield United hefur fengið Richard Creswell á láni frá Stoke City í þrjá mánuði.
Þessi 32 ára gamli leikmaður hefur fengið fá tækifæri með Stoke á tímabilinu og hann ákvað því að stökkva á tækifærið til að ganga til liðs við Sheffield United.
Creswell hefur skorað 22 mörk síðan hann kom til Stoke árið 2007 en hann er ekki efstur á vinsældarlistanum hjá stuðningsmönnum félagsins og á síðustu leiktíð bauluðu þeir á hann í leikjum.
Á ferli sínum hefur Creswell einnig leikið með Leeds, Preston, Sheffield Wednesday, Mansfield og York.

Heimild: BBC