Fotbolti.net
30.09.10 - 13:39
Hafliði Breiðfjörð

Þorvaldur Örlygsson framlengir hjá Fram (Staðfest)

Þorvaldur eftir undirskriftina við Fram.

Þorvaldur eftir undirskriftina við Fram.

Canon

Mynd: Björn Þórisson

Þorvaldur Örlygsson verður áfram þjálfari Fram en hann skrifaði undir nýjan samning við félagið þess efnis sem gildir til ársins 2013. Þetta staðfesti félagið á vef sínum rétt í þessu en Þorvaldur hefur þótt standa sig afar vel hjá félaginu síðan hann tók við liðinu í október árið 2007. Á fyrsta ári undir hans stjórn endaði liðið í þriðja sæti deildarinnar, og því fjórða og fimmta árin þar á eftir.
Tilkynning Fram
Stjórn Fram FFR og Þorvaldur Örlygsson þjálfari úrvalsdeildarliðs Fram hafa undirritað nýjan samning þess efnis að Þorvaldur annist áfram þjálfun félagsins. Samningurinn gildir til ársloka 2013.

Stjórn Fram FFR lýsir yfir ánægju með samninginn, enda hefur Fram náð góðum árangri undir stjórn Þorvaldar undanfarin ár og stöðugleiki verið í uppbyggingarstarfi félagsins. Störf Þorvaldar hafa verið mikilvæg í þeirri uppbyggingu.

Stjórn Fram FFR væntir mikils af samstarfinu við Þorvald, enda hefur félagið háleit markmið um góðan árangur úrvalsdeildarliðs Fram á næstu árum.

Heimild: Fram.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.