Fotbolti.net
30.09.10 - 14:18
Hörður Snævar Jónsson

Sigurður Helgason áfram með Gróttu (Staðfest)

Sigurður eftir undirskriftina.

Sigurður eftir undirskriftina.

Canon

Mynd: Grótta

Grótta hefur framlengt samning sinn við Sigurð Helgason og gerir við hann tveggja ára samning.

Sigurður tók við Gróttu Ásmundi Guðna Haraldssyni í sumar og bjargaði Gróttu frá falli úr 1. deildinni með því að ná í eitt stig í lokaleiknum gegn Njarðvík í þremur leikjum.
Yfirlýsing frá stjórn Gróttuk
Sigurður Helgason hefur verið ráðin þjálfari hjá meistaraflokki karla hjá knattspyrnudeild Gróttu til næstu 2 ára. Sigurður stýrði meistaraflokki félagsins síðustu þrjá leikina í 1. deildinni þar sem Grótta náði þeim frábæra árangri að halda sínu sæti eftir að hafa spilað í deildinni í fyrsta skipti í sögu félagins.

Sigurður hefur þjálfað í tæp 30 ár og meðal annars flesta flokka Gróttu, KS og KR. Sigurður byrjaði þjálfun hjá knattspyrnudeild Gróttu haustið 2006 en hafði áður þjálfað hjá Gróttu á árinum 1991-1994. Sigurður er með UEFA- A þjálfaragráðu frá KSÍ og mun hann einnig þjálfa 2. flokk karla hjá félaginu.

„Stjórn knattspyrnudeildar Gróttu fagnar því að Siggi Helga hafi samþykkt áframhaldandi þjálfun hjá félaginu því við teljum hann vera með betri þjálfurum landsins í dag. Deildin þarfnast dýrmætrar reynslu Sigga því það bíður Gróttu aftur krefjandi verkefni að viðhalda sínu sæti áfram í fyrstu deildinni á næsta ári.\"

,,Siggi mun einnig þjálfa 2 flokk karla hjá félaginu þar sem margir efnilegir leikmenn eru farnir að leika mikilvæg hlutverk með meistaraflokki félagins “
sagði Hilmar S. Sigurðsson formaður knattspyrnudeildar Gróttu
Sigurður Helgason áfram með Gróttu (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.