Fotbolti.net
30.09.22 - 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Hasenhuttl: Ekki meiri pressa en aðra daga

Hasenhuttl: Ekki meiri pressa en aðra daga
Canon

Mynd: EPA

Southampton tekur á móti Everton á morgun í 9. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Liðin eru í 13. og 14. sæti deildarinnar, með jafnmörg stig en markatala Everton er betri.

Southampton hefur tapað tveimur leikum í röð á meðan Everton er taplaust í fimm leikjum í röð. Ralph Hasenhuttl, stjóri Southampton, var spurður hvort það væri pressa á honum fyrir leikinn gegn Everton.
„Ég er ekki undir meiri pressu núna en aðra daga. Í síðustu viku útskýrði ég að mesta pressan sem ég finn fyrir sé sú pressa sem ég set á mig sjálfan að skila besta mögulega starfi sem ég get."

„Leikurinn á morgun verður áhugaverður, byrjun Everton var erfið en þeir hafa sýnt að þeir geta unnið leiki. Við verðum klárir í leikinn. Þeir eru orkumiklir, með hraða fremst á vellinum. Neal Maupay passar vel inn í liðið og Conor Coady hjálpar liðinu einnig."

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.