Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 30. september 2022 10:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Real Madrid ætlar að reyna við Cancelo
Mynd: EPA

Real Madrid hefur áhuga á að fá Joao Cancelo bakvörð Manchester City en þetta kemur fram á spænska miðlinum AS.


Real er talið ætla að bjóða 45 milljón punda í leikmanninn sem á fimm ár eftir af samningi sínum við City.

Cancelo getur spilað bæði hægra og vinstra megin en Real er talið sjá hann fyrir sér vinstra megin þar sem framtíð Ferland Mendy er í óvissu.

Þá er spænska liðið einnig talið ætla að næla í Erling Haaland frá City en liðið getur fengið hann fyrir 161 milljón punda þar næsta sumar.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner