30.10.09 - 12:17
Hörður Snævar Jónsson
Jökull Elísabetarson og Högni Helgason í Breiðablik (Staðfest)

Jökull (t.v) fagnar marki með Víkingum gegn Blikum sumarið 2007.

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Breiðablik gekk í dag frá kaupum á tveimur leikmönnum en það eru Jökull Elísabetarson og Högni Helgason.
Jökull sem er varnar og miðjumaður kemur frá Víkingi en hann spilaði 19 leiki með liðinu í 1. deild í sumar og skoraði fimm mörk.
Högni er 20 ára gamall sóknar og miðjumaður sem kemur frá Egilsstöðum en hann lék með Fjarðarbyggð síðasta sumar og skoraði fimm mörk í 1. deildinni líkt og Jökull.
Þetta eru fyrstu leikmennirnir sem ganga í raðir Breiðabliks eftir að liðið varð bikarmeistari en samkvæmt heimildum Fótbolta.net hefur liðið einnig verið í viðræðum við Rafn Andra Haraldsson leikmann Þróttar sem er að skoða sín mál.

Heimild: Blikar.is