Fotbolti.net
30.10.09 - 12:29
Hafliði Breiðfjörð

Atli Jóhannsson í Stjörnuna (Staðfest)

Atli skrifar undir samninginn í dag.

Atli skrifar undir samninginn í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Atli Jóhannsson er genginn til liðs við Stjörnuna og skrifaði undir tveggja ára samning við félagið á fréttamannafundi rétt í þessu.
Atli kemur til félagsins frá KR þar sem hann hefur verið undanfarin ár en fyrr í vikunni tilkynnti KR að Atli væri hættur hjá félaginu.

Atli kom til KR frá ÍBV fyrir leiktíðina 2007 en meiðsli settu strik í reikninginn hjá honum fyrstu tvö árin.

Í ár lék hann sautján leiki í Pepsi-deildinni og skoraði eitt mark en alls skoraði hann sex mörk í 72 leikjum fyrir KR á ferli sínum.

Hann átti mun betri feril hjá ÍBV þar sem hann er uppalinn og var eftirsóttur þegar hann fór þaðan til KR.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.