Fotbolti.net
30.10.09 - 20:15
Hafliði Breiðfjörð

Grétar Ali Khan og Ólafur Páll Johnson í Gróttu (Staðfest)

Grétar Ali Khan.

Grétar Ali Khan.

Canon

Mynd: Haukur Harðarson

Grótta tilkynnti nú í kvöld að félagið hafi styrkt sig með tveimur leikmönnum fyrir baráttuna í 1. deildina á næstu leiktíð. Þetta eru þeir Grétar Ali Khan fyrrverandi fyrirliði liðsins sem kemur frá Víkingi og Ólafur Páll Johnson sem kemur frá Fjölni.
Grétar Ali Khan hafði yfirgefið Gróttu fyrir ári síðan og gengið til liðs við Víking. Hann snýr nú aftur heim í Gróttu þar sem hann hóf meistaraflokksferil sinn árið 2002 en hann er uppalinn í KR.

Hann lék 10 leiki með Víkingi í 1. deildinni í sumar og skoraði tvö mörk en þá spilaði hann ýmist á kanti eða í stöðu bakvarðar. Hann hefur mikla reynslu með Gróttu þar sem hann hefur spilað 87 leiki í deild og bikar.

Ólafur Páll Johnson er einnig uppalinn hjá KR en hefur leikið með Fjölni undanfarin ár. Hann lék einn meistaraflokksleik með KR sumarið 2004 en gekk svo til liðs við Fjöln.

Hann hefur leikið sem miðvörður eða miðjumaður hjá Fjölni og á fimm árum hjá félaginu lék hann 94 leiki.

Grótta vann 2. deild karla síðasta sumar og leikur því í 1. deild á komandi leiktíð. Koma Ólafs Páls og Grétars Ali er fyrsta skref félagsins í að styrkja liðið fyrir þá baráttu.

,,Þetta eru fyrstu nýju leikmennirnir hjá félaginu fyrir komandi leiktíð og er stjórn knattspyrnudeildar Gróttu mjög ánægðir með þennan liðsauka,\" sagði í tilkynningu frá Gróttu nú í kvöld.

Á myndunum við undirskrift með leikmönnum er sitjandi Hilmar Sigurðsson formaður knattspyrnudeildar ásamt þeim Birgi Hákonasyni og Jóni Sigurðssyni stjórnarmönnum
Ólafur Páll Johnson.

Ólafur Páll Johnson.

Canon

Mynd: Haukur Harðarson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.