Fotbolti.net
30.10.09 - 20:30
Hafliði Breiðfjörð

Marcus Bent til Middlesbrough (Staðfest)

Marcus Bent er kominn til Middlesbrough.

Marcus Bent er kominn til Middlesbrough.

Canon

Mynd: Getty Images

Gordon Strachan er þegar byrjaðu rað kaupa leikmenn til Middlesbrough því framherjinn Marcus Bent kom til félagsins á tveggja mánaða láni frá Birmingham í dag.
Bent sem er 31 árs gamall hefur ekkert spilað með Birmingham á tímabilinu eftir að hafa meiðst aftan í læri og glímt við það.

,,Það er gott tækifæri fyrir hann að fara þangað í tvo mánuði,\" sagði Alex McLeish stjóri Birmingham á vef félagsins í dag.

,,Þegar það er tímabært fyrir hann að snúa aftur vonum við að hann verði í frábæru formi og berjist um sæti í liðinu.\"

Bent kom til Birmingham frá Charlton í júlí árið 2008 eftir að síðarnefnda liðið féll úr úrvalsdeildinni.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.