Fotbolti.net
30.11.06 - 06:00
Andri Fannar Stefánsson

Bjarni Pálmason í Hamrana (Staðfest)

Bjarni í baráttu gegn Þrótti R. í sumar

Bjarni í baráttu gegn Þrótti R. í sumar

Canon

Mynd: Pedromyndir.is

Bjarni Pálmason 22 ára sóknarmaður úr KA er genginn til liðs við þriðju deildarliðið Hamrana en þeir lentu í neðsta sæti D-riðils þriðju deildarinnar í sumar.
Bjarni lék 17 leiki í sumar með KA og náði ekki að skora í þeim en hann hefur alls leikið 28 leiki og skorað í þeim fjögur mörk fyrir lið KA.

Bjarni er ekki sá fyrsti til að fara frá KA fyrir næsta tímabil en sjö leikmenn, að honum meðtöldum hafa yfirgefið liðið. Þar má helst nefna Hrein Hringsson sem rifti samning sínum við liðið og Jón Gunnar Eysteinsson sem fór í Fjarðabyggð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.