Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mán 30. nóvember 2020 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Tvö ný smit hjá Newcastle
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Newcastle United staðfesti þrjú smit innan félagsins fyrir helgi og nú hafa tvö smit til viðbótar verið staðfest.

Það eru því fimm starfsmenn félagsins komnir í einangrun. Ekki eru þeir nafngreindir en líklegt er að einhverjir leikmenn séu meðal smitaðra.

Newcastle á næst leik við Aston Villa á föstudaginn og er hópurinn að gera sitt besta til að takmarka smithættu fyrir næstu umferð skimana.

„Þetta er búin að vera erfið vika. Það er erfitt að eiga við þetta en við erum að gera allt í okkar valdi til að takmarka smithættu," sagði Steve Bruce, knattspyrnustjóri Newcastle.
Athugasemdir
banner
banner