Fotbolti.net
30.12.11 - 20:00
Magnús Már Einarsson

Marlon Harewood til Nottingham Forest (Staðfest)

Marlon Harewood til Nottingham Forest (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Marlon Harewood hefur gengið til liðs við Nottingham Forest en hann skrifaði undir fjögurra mánaða samning við félagið.

Þessi 32 ára gamli leikmaður þekkir vel til hjá Nottingham Forest því hann skoraði 55 mörk þegar hann lék með liðinu frá 1996-2003.
Harewood skoraði fimm mörk í sextán leikjum með Blackpool á síðasta tímabili áður en hann gekk til liðs við Guangzhou í Kína.

Harewood hjálpaði Guangzhou R&F að komastu upp í kínversku úrvalsdeildina á dögunum en þessi nautsterki framherji er nú mættur aftur til Englands.

Auk Blackpool og Nottingham Forest þá hefur Harewood leikið með Aston Villa, West Ham, Wolves, Newcastle og Barnsley á Englandi.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.