30.12.11 - 14:07
Magnús Már Einarsson
Carlo Ancelotti tekinn við PSG (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Carlo Ancelotti hefur verið ráðinn þjálfari hjá franska félaginu Paris Saint-Germain.
Ancelotti tekur við liðinu af Antoine Kombouare sem fékk að taka pokann sinn í dag þrátt fyrir að liðið sé í toppsæti frönsku deildarinnar.
,,Ég vonast til að geta unnið gott starf til að hjálpa PSG að verða stórt félag í Evrópu,\" sagði Ancelotti á fréttamannafundi í dag.
Ancelotti, sem er 52 ára, stýrði síðast Chelsea en hann var rekinn þaðan í sumar.
Ancelotti mun fá nægan pening til leikmannakaupa hjá PSG en félagið hefur nú þegar eytt 82 milljónum evra (68 milljónum punda) eftir að ríkir eigendur frá Katar tóku við stjórnvölunum.

Heimild: AP