30.12.11 - 15:00
Magnús Már Einarsson
Haraldur Freyr í Keflavík (Staðfest)

Mynd: Jón Örvar Arason

Mynd: Jón Örvar Arason
Haraldur Freyr Guðmundsson er genginn aftur í raðir Keflvíkinga eftir að hafa verið á mála hjá Start í Noregi undanfarna mánuði.
Þessi sterki varnarmaðurinn skrifaði undir tveggja ára samning við Keflavík í dag og verður því hjá félaginu til ársloka 2013.

,,Það er auðvitað mikill styrkur fyrir Keflavík að fá Harald Frey aftur í sínar raðir og ljóst að að það mun skipta miklu næsta keppnistímabil að hafa þennan öfluga leikmann og góða félaga í okkar röðum,\" segir í frétt á heimasíðu Keflvíkinga.
Haraldur Freyr er þrítugur og lék fyrst með meistaraflokki Keflavíkur árið 1999. Hann lék með Ålesund í Noregi og Apollon Limassol á Kýpur á árunum 2005-2009 en kom aftur til Keflavíkur árið 2009.
Haraldur, sem á 106 deildarleiki að baki með Keflavík, var fyrirliði liðsins síðasta sumar áður en hann fór síðan til Start í ágúst.

Heimild: Heimasíða Keflavíkur