Fotbolti.net
31.01.05 - 10:14
Hafliði Breiðfjörð

Graham Stuart til Norwich (Staðfest)

Graham Stuart til Norwich (Staðfest)
Canon
Graham Stuart miðvallarleikmaður Charlton gekk í morgun í raðir Norwich og gerði samning við félagið út tímabilið. ,,Þetta var auðvelt ákvörðun að taka," sagði Stuart við vefsíðu Norwich.
,,Ég vildi halda áfram að leika í úrvalsdeildinni."

Nigel Worthington stjóri Norwich var hæstánægður með fenginn og sagði:

,,Ég er hæstánægður með að Graham muni ganga til liðs við okkur út leiktíðina. Hann gefur okkur mikla reynslu. Vonandi getur hann átt þátt í að halda okkur í úrvalsdeildinni."

Stuart hefur mikla reynslu í deildinni með Everton, Chelsea og Charlton og getur spilað hvar sem er á miðjunni. Hann spilaði 164 leiki fyrir Charlton og skoraði 23 mörk en hefur átt við bakmeðsli að stríða að undanförnu og ekki spilað leik í þrjá mánuði.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.