Fotbolti.net
31.01.05 - 11:02
Hafliði Breiðfjörð

Alexsander Rodic til Porstmouth (Staðfest)

Alexsander Rodic til Porstmouth (Staðfest)
Canon
Porstmouth hafa fengið slóvenska landsliðsmanninn Alexsander Rodic frá Gorica. Rodic sem er 24 ára gamall er mikill markaskorari og átti stóran þátt í að Gorica vann slóvensku deildina á síðustu leiktíð. Milan Mandaric stjórnarformaður Portsmouth hefur trú á að leikmaðurinn haldi áfram að skora í ensku úrvalsdeildinni.
,,Við höfum samið við efnilegan ungan framherja sem er mjög beittur í teignum," sagði Mandaric við opinbera vefsíðu félagsins.

,,Hann verður spennandi viðbót við Portsmouth og við höfum mikla trú á að hann haldi áfram á Fratton Park þar sem hann hætti í deildinni heima og með landsliðinu."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.