31.01.05 - 15:14
Vincent Candela til Bolton (Staðfest)

Sam Allardyce hefur fengið Franska varnarmanninn Vincent Candela að láni til Bolton í fimm mánuði. Candela er 31 árs gamall kemur til Englands á morgun frá Roma þar sem hann varð meistari árið 2001. Hann spilaði þó aðeins 7 leiki undir stjórn Luigi Del Neri hjá liðinu.
"Ég skrifaði undir fimm mánaða langan samning við Bolton" sagði Candela í dag. "Í júní mun ég ákveða hvort ég verði áfram hjá Bolton eða hætta knattspyrnuiðkun."
Allardyce vonast eftir því að Candela komi sterkur inn en meiðsli hafa verið að hrjá vörn Bolton. Nicky Hunt meiddist í leiknum gegn Oldham í gær og því gæti Candela komið strax inn í liðið.
Candela getur bæði spilað í vinstri og hægri bakverði en þrátt fyrir að vera í raun örfættur er hann jafnvígur á hægri og vinstri.