31.01.05 - 15:44
Magnús Már Einarsson
De Pedro frá Blackburn til Perugia (Staðfest)

De Pedro tekur aukaspyrnu fyrir spænska landsliðið.


De Pedro tekur aukaspyrnu fyrir spænska landsliðið.

Spænski vinstri kantmaðurinn Javier De Pedro hefur yfirgefið Blackburn Rovers og gert samning við ítalska liðið Perugia. De Pedro sem er 31 árs kom til Blackburn frá Real Sociedad síðastliðið sumar en honum hefur gengið illa á Englandi og aðeins leikið tvo leiki í ensku úrvalsdeildinni.
Perugia sem er í þriðja sæti í Serie B á Ítalíu fær De Pedro frítt frá Blackburn og vonast liðið til þess að hann hjálpi því að komast aftur upp í Serie A.
