Fotbolti.net
31.01.05 - 21:01
Magnús Már Einarsson

Bernard og Camara til Southampton (Staðfest)

Olivier Bernard.

Olivier Bernard.

Canon
Southampton hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir komandi baráttu um að forðast fall í ensku úrvalsdeildinni því að liðið hefur fengið vinstri bakvörðinn Olivier Bernard frá Newcastle og sóknarmanninn Henri Camara frá Glasgow Celtic.
Bernard sem er 25 ára kemur til Southampton á um 400 þúsund pund en samningur hans við Newcastle átti að renna út í sumar. Bernard hafði fengið nýtt samningstilboð frá Newcastle en hann hafnaði því, taldi launin of lág og ekki batnaði staða hans hjá félaginu þegar að Celestine Babayaro kom frá Chelsea.

Henri Camara kemur aftur á móti á láni frá Wolves út tímabilið. Camara sem er frá Senegal hafnaði því að leika með Wolves eftir að liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni og því var hann lánaður til Glasgow Celtic. Þar náði hann sér ekk á strik og var samband hans og Martin O'Neill stjóra liðsins ekki gott.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.