Fotbolti.net
31.01.05 - 17:53
Magnús Már Einarsson

Bojinov óvænt til Fiorentina (Staðfest)

Bojinov fagnar marki með félögum sínum.

Bojinov fagnar marki með félögum sínum.

Canon
Fiorentina hefur komið með óvænt útspil á félagaskiptamarkaðnum því að liðið hefur keypt búlgarska framherjann Valeri Bojinov frá Lecce. Kaupverðið er um 9,3 milljónir punda og þá fer miðjumaðurinn Jamie Andreas Valdes einnig til Lecce í skiptum.
Þetta eru mjög óvænt tíðindi en Bojinov sem er einn sá efnilegasti í Evrópuboltanum hefur verið undir smásjá Chelsea, Barcelona, AC Milan og Juventus og á dögunum lýsti Chelsea yfir áhuga sínum á að fá hann.

Bojinov sem er 18 ára hefur skorað 11 mörk í Serie A í vetur en hann lék sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Lecce aðeins 15 ára gamall.

Einnig vekur athygli að hann fari frá Lecce sem er um miðja deild til Fiorentina sem er í sextánda sæti og ekki langt frá fallslagnum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.