31.01.05 - 21:32
Mehdi Nafti til Birmingham (Staðfest)




Birmingham hafa fengið Túnisbúann Mehdi Nafti að láni út leiktíðina. Hann kemur frá spænska liðinu Racing Santander og er 26 ára gamall. Möguleiki er á því að Birmingham kaupi hann í sumar og eiga þeir forkaupsrétt á honum.
Nafti fæddist í Frakklandi en hann hjálpaði Túnis að vinna Afríkubikarinn á síðasta ári. Hann hefur skorað 3 mörk í 75 leikjum fyrir Racing Santander.
Hann kom þaðan frá franska liðinu Toulouse árið 2000 en hann var rekinn útaf í síðasta leik sínum fyrir liðið.
Hann kom þaðan frá franska liðinu Toulouse árið 2000 en hann var rekinn útaf í síðasta leik sínum fyrir liðið.
