Fotbolti.net
31.01.06 - 12:12
Hafliði Breiðfjörð

Andres D'Alessandro til Portsmouth (Staðfest)

Andres D'Alessandro til Portsmouth (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Portsmouth hafa gengið frá samningum við argentíska landsliðsmanninn Andres D'Alessandro en hann á bara eftir að fá leikheimild sem búist er við að verði klár svo hann geti spilað leikinn gegn Bolton í ensku úrvalsdeildinni annað kvöld.
D'Alessandro er 23 ára gamall. Í samtali við Sky Sports í dag sagðist hann spenntur fyrir sínu nýja félagi.

,,Ég er mjög spenntur," sagði hann. ,,Ég er mjög ánægður að vita að ég sé eftirsóttur á Englandi og að spila fyrir Portsmouth er frábært tækifæri. Ég veit að Harry Redknapp er frábær maður og ég hlakka til að vinna með honum."

D'Alessandro kemur á láni til Portsmouth út leiktíðina og eftir það á félagið kost á að kaupa hann. Hann er níundi leikmaðurinn sem gengur til liðs við félagið í janúar og sá þriðji á einum sólarhring. Ekki er búið að útiloka að enn fleiri komi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.