31.01.06 - 14:56
Hafliði Breiðfjörð
Fjölnir lánar Þórð Ingason til Everton (Staðfest)

Þórður.

Mynd: Úr einkasafni

Þórður.

Mynd: Úr einkasafni
Þórður Ingason markvörður Fjölnis í Grafarvogi hefur verið lánaður til enska úrvalsdeildarfélagsins Everton út leiktíðina á Englandi. Þórður sem er á átjánda ári fór til Englands í gærmorgun til að ganga frá samningum við Everton.
,,Hann fer á lánssamning til áttunda maí og á þeim tíma ætla þeir að meta hvort þeir taki hann alveg á samning eða hvað. Ég held að hann fái fjölbreytt verkefni og æfi ekki bara með U-19 ára liðinu heldur eitthvað meira," sagði Ásmundur Arnarson þjálfari Fjölnis í samtali við Fótbolta.net í dag en Þórður ætti því að vera kominn heim áður en fyrsta deildin hefst ákveði Everton að fylgja ekki eftir áhuga sínum.
Þórður æfði með Everton í lok nóvember en hafði áður æft með Karlsruher í Þýskalandi í október. Hjá Everton mun hann hitta fyrir annan Íslending og jafnaldra því Bjarni Þór Viðarsson hefur verið hjá liðinu undanfarin ár og leikur með varaliðinu.
Fjölnir stendur því eftir með einn markvörð í meistaflokki að minnsta kosti fram á vor en það er Ögmundur Rúnarsson. Ásmundur segist þó ekki útiloka að liðið fái sér markvörð á næstunni til að fylla skarð Þórðar að minnsta kosti í bili.