Fotbolti.net
31.01.06 - 13:37
Hafliði Breiðfjörð

Gonzalez og Viafara til Real Sociedad (Staðfest)

Leikmenn Real Sociedad fá liðsstyrk og nýjan þjálfara.

Leikmenn Real Sociedad fá liðsstyrk og nýjan þjálfara.

Canon

Mynd: Getty Images

Spænska félagið Real Sociedad staðfesti í dag að þeir hafi náð samningum um að fá kantmanninn Mark Gonzalez frá Liverpool og John Viafara miðvallarleikmann Portsmouth á láni út leiktíðina.
Gonzalez sem er landsliðsmaður Chile lenti í slæmum meiðslum á hné á síðustu leiktíð en hann gekk í raðir Liverpool frá Albacete á Spáni í október. Hann hefur hinsvegar aldrei spilað fyrir þá rauðu því vandræði hafa verið með atvinnuleyfi.

,,Ég kem til San Sebastian með allan eldmóð í heimi til að taka þátt í að fá Real Sociedad á skrið í deildinni. Þó ég sé ekki 100% vegna meiðsla minna er ég tilbúinn að spila," sagði Gonzalez.

Viafara vann Libertadores bikarinn með Once Calas. Hann er kólumbískur landsliðsmaður sem gekk í raðir Porstmouth í byrjun leiktíðarinnar. Hann sagðia ð landi hans, Vactor Bonilla og Sander Westerveld markvörður Portsmouth sem báðir hafa spilað fyrir Sociedad hafi talað svo vel um félagið.

Sociedad er í 15. sæti spænsku deildarinnar, aðeins fjórum stigum fyrir ofan fallsvæði eftir 3-1 tap gegn Alaves á sunnudag. Þeir ráku Jose Maria Amorrortu þjálfara sinn í gær og réðu í hans stað varaliðsþjálfarann Gonzalo Arconada.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.