31.01.06 - 15:51
Hafliði Breiðfjörð
Michael Brown til Fulham (Staðfest)

Michael Brown

Mynd: Getty Images

Michael Brown

Mynd: Getty Images
Miðvallarleikmaðurinn Michael Brown er genginn í raðir Fulham frá Tottenham. Brown hafði komið til Tottenham í janúar árið 2004 á hálfa milljón punda frá Sheffield United en hefur aldrei verið fastur maður í liði Tottenham.
,,Ég er mjög spenntur fyrir því að ganga í raðir Fulham og hlakka til áskorunarinnar sem þetta nýja tækifæri býður okkur," sagði Brown við vefsíðu Fulham.
Chris Coleman stjóri Fulham sagði: ,,Michael er hæfileikaríkur fótboltamður og hann mun veita okkur nýja vídd á miðjunni."
Brown hefur aðeins leikið 11 leiki með Tottenham á leiktíðinni. Hann bætti við: ,,Ég naut tímans þarna og óska félaginu og stuðningsmönnum þess alls hins besta."
,,En tækifæri mín þar urðu fá svo þegar félag eins og Fulham sem spilar skemmtilegan sóknarbolta sýndi mér áhuga, var í raun bara ein ákvörðun sem ég þurfti að taka. Ég hlakka til að vinna með Chris Coleman og öllum hópnum."