31.01.06 - 19:51
Hörður Snævar Jónsson
DJ Campbell til Birmingham (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Birmingham City hefur óvænt fest kaup á framherja Brentford, DJ Campbell. Kaupverðið er um 500 þúsund pund en Campbell sem er 24 ára gamall skoraði tvö mörk um helgina þegar Brentford lagði Sunderland í ensku bikarkeppninni.
Þessi snaggarlegi leikmaður vakti athygli í bikarkeppninni með Yeading í fyrra og í kjölfarið reiddi Brentford fram fimm þúsund pund fyrir leikmanninn síðastliðið sumar svo liðið hefur aldeilis grætt vel á sölunni til Birmingham en leikmaðurinn hefur aðeins leikið 28 leiki sem atvinnumaður í fótbolta.
Vissir þú að:
Áður en hann fór til Brentford síðastliðið sumar æfði Campbell bara tvisvar í viku með utandeildarliði Yeading.
Vissir þú að:
Áður en hann fór til Brentford síðastliðið sumar æfði Campbell bara tvisvar í viku með utandeildarliði Yeading.
