Fotbolti.net
31.01.06 - 19:49
Hafliði Breiðfjörð

Hörður Sveinsson til Silkeborg (Staðfest)

Hörður Sveinsson til Silkeborg (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Hörður Sveinsson framherji Keflavíkur gekk í dag í raðir danska úrvalsdeildarliðsins Silkeborg en hann er lánaður fram á sumar fyrst um sinn og svo mun danska félagið ákveða hvort þeir vilji kaupa hann. Hann fær treyju númer 27 hjá Silkeborg.
Hörður var efnilegasti leikmaður Landsbankadeildarinnar í sumar en hann skoraði 9 mörk í 17 leikjum með Keflavík í deildinni en hann er einnig fastamaður í U-21 árs landsliði Íslendinga.

Hann æfði með nokkrum liðum á Norðurlöndunum og í Hollandi eftir að tímabilinu lauk hér heima án þess þó að fá samning. Því samdi hann við Keflavík til þriggja ára fyrr í janúar en var svo boðið til æfinga hjá Silkeborg sem nú hefur fengið hann að láni.

Hörður er annar Íslendingurinn til að ganga í raðir Silkeborg í janúar því Bjarni Ólafur Eiríksson fór til þeirra frá Val og skrifaði undir samning við félagið í síðustu viku.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.